Open embrace tangómaraþon 23. - 25. mars 2012
Maraþon Tangófélagsins hafa notið vaxandi vinsælda á undanförnum árum. Að þessu sinni flyst Open embrace út fyrir borgarmörkin og verður haldið á Flúðum. Þar er stór salur til að dansa í og gist verður í sumarhúsum í kring. Í sumarhúsunum eru tveggja manna herbergi, sum með tvíbreiðu rúmi, önnur með kojum. Látið þess getið við skráningu ef þið hafið óskir um herbergisfélaga. Hverju húsi fylgir heitur pottur og þar verður gott að láta líða úr sér þegar fæturnir eru farnir að þreytast! Gert er ráð fyrir að fólk komi sér sjálft á Flúðir og sameinist í bíla svo allir komist með. Þetta skipuleggjum við þegar nær dregur.
Nokkrar sameiginlegar máltíðir eru innifaldar í verðinu: Létt máltíð á föstudagskvöld (súpa og brauð), hádegis- og kvöldmatur á laugardag og brunch á sunnudag. Auk þess verður kaffi, ávextir og ef till vill fleira smálegt á boðstólum. Enginn bar er á staðnum en fólki er frjálst að taka með sér drykki að eigin vali.
Gesta DJ er Birger Haugdal frá Bergen, en Þórður og Kristinn leggja einnig hönd á plóg í tónlistardeildinni. Tangólífið í Bergen er orðið þekkt fyrir góða tónlist á milongum. Birger var gestur okkar á Tango on Iceland 2011 og við hlökkum til að fá hann aftur til okkar.
Verð fyrir Open embrace 2012 er 12.500 fyrir félagsmenn Tangófélagsins, annars 14.500.
Innifalið í verðinu er:
allar milongur
gisting
4 máltíðir
Ekki innifalið:
ferðir
morgunmatur
- Dagskrá Open embrace 23. - 25. mars 2012 á Flúðum
Föstudagur
18 - 21 Mæting á Flúðir
21 - 01 Milonga
Laugardagur
10 - 13 Morgunkaffimilonga
Hádegismatur
14 - 18.30 Síðdegimilonga
Kvöldmatur
21 - 03 Milonga
Sunnudagur
11 - 16 Brunchmilonga






