Skip to Content

Tango on Iceland 2012


Dagskrá hátíðarinnar
Allir viðburðir - tímatafla
Tangó fyrir byrjendur
Verð
Skráning
Baðferð í Bláa lónið
Hafa samband
Kort

 

Velkomin á Tango on Iceland 
30. ágúst - 2. september 2012

Gestakennarar Tango on Iceland 2012 verða: 
Diego Riemer & Maria Belen Giachello (meira hér)
Mette Munk Andresen & Martin Nymann Pedersen (meira hér)
Bryndís Halldórsdóttir & Hany Hadaya (meira hér)
Aðal DJ hátíðarinnar er Birger Haugdal frá Bergen

Það er okkur mikið tilhlökkunarefni að fá þessa frábæru kennara aftur til okkar, en bæði erlendu kennarapörin voru gestir okkar á Tango on Iceland 2011. Þau gerðu hvílíka lukku að það var ákveðið að fá þau strax aftur á næstu hátíð.

Hátíðin hreiðrar enn á ný um sig í Iðnó og Kramhúsinu. Fyrsti viðburður hátíðarinnar er þó í tónleikasal Listaháskóla Íslands, Sölvhólsgötu 13, þar sem Hany Hadaya opnar hátíðina með fyrirlestrinum Saga tangósins og áhrif hans í Evrópu. Þar er margt fróðlegt að heyra og sjá því Hany sýnir myndir og gefur tóndæmi. Hvernig kom tangóinn til Evrópu? Hvernig varð finnski tangóinn til? Af hverju er svona mikið af frábærum tangódönsurum í Tyrklandi? 

Fyrsta milonga hátíðarinnar verður í Kramhúsinu á fimmtudagskvöld kl 21.30 - 01.
Síðdegismilongur verða á föstudag, laugardag og sunnudag í litlum en yndislegum sal á 2. hæð í Iðnó.
Námskeiðin fara fram í Kramhúsinu og Iðnó síðdegis á föstudag, laugardag og sunnudag.
Á kvöldin verður dansað inn í síðsumarsnæturnar í Iðnó. Hátíðinni lýkur í Iðnó kl 22 á sunnudagskvöld.

 



Drupal vefsíða: Emstrur