Þriðja bíómilonga Tangófélagsins verður laugardaginn 30. maí í Bíó Paradís. Dagskráin hefst kl. 19 með sýningu á myndinni „Tango“ (1998) í leikstjórn Carlos Saura.
Mynd Saura er lykilverk í kvikmyndasögu tangósins, þar sem mörk sviðslistar, dans og kvikmyndar renna saman í marglaga sjónræna heild. Í gegnum stílfærða sviðsetningu og sjálfsvísandi frásagnarform varpar myndin ljósi á fagurfræði, ástríðu og dramatík argentínsks tangós, um leið og hún speglar sköpunarferli listamannsins sjálfs.
Að sýningu lokinni verður milonga í anddyri bíósins.
Verð á viðburðinn er kr. 2.300 fyrir félagsmenn og 2.800 fyrir aðra.
Hægt er að kaupa miða fyrirfram með því að millifæra á reikning félagsins. Fyrstir koma fyrstir fá. Ef ekki er uppselt áður en viðburðurinn hefst verður hægt að borga með posa í bíósalnum.
Reikningur félagsins er: 0303-26-002215
Kennitala: 480500-3180
Sendið skilaboð um miðakaup á: tangofelagid@gmail.com
||
The Reykjavik Tango Club’s third cinema milonga will take place on Saturday, 30 May, at Bíó Paradís. The program begins at 7 PM with a screening of Carlos Saura’s film “Tango” (1998).
Saura’s film stands as a key work in the cinematic interpretation of tango, where the boundaries between stage performance, dance, and film dissolve into a layered visual composition. Through stylised staging and a self-reflexive narrative structure, it explores the aesthetics, passion, and dramatic intensity of Argentine tango while simultaneously reflecting on the artist’s creative process.
After the screening, a milonga will be held in the cinema’s lobby.
The event price is ISK 2,300 for members and ISK 2,800 for non-members.
Tickets can be purchased in advance by transferring money to the association’s bank account. It’s first-come, first-served. If the event is not sold out before it begins, card payments will be accepted at the cinema hall.
The association’s account number is: 0303-26-002215
ID number (Kennitala): 480500-3180
Send a message about ticket purchases to: tangofelagid@gmail.com