Kramhúsið auglýsir byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið í tangó.
Byrjendanámskeiðið hefst 27. febrúar og framhaldsnámskeiðið
2. mars.
Kennt verður einu sinni í viku, byrjendanámskeiðið verður á föstudagskvöldum kl. 20:00-21:00 og framhaldsnámskeiðið verður á þriðjudagskvöldum kl. 21:15. Nauðsynlegt er að hafa danspartner á námskeiðunum.
Kennarar á byrjendanámskeiðinu eru: Tinna & Jói og á framhaldsnámskeiðinu Tryggvi & Tinna. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Kramhússins og þar er hægt að skrá sig á námskeið:
http://www.kramhusid.is/events/tango/.
Námskeiðin eru hvort um sig 6 vikur og kosta 15.800,- kr. á mann.
Einstaklingar sem vilja taka þátt í námskeiði en vantar dansfélaga geta nýtt sér Facebook-hóp sem nefnist Tango club Reykjavík – Partnersearch:
https://www.facebook.com/groups/579335245422129/
Tangó-dansleikur nefnist ‘milonga’ og Tangófélagið stendur fyrir milongu (El Cramo) í Kramhúsinu í viku hverri á föstudagskvöldum kl. 21–24 og í Iðnó kl. 20:30-22:30. Félagið býður þátttakendum á námskeiði Kramhússins ókeypis aðgang að öllum milongum þess á meðan á námskeiðum stendur. Sérstök athygli er vakin á því að á milli kl. 21 og 22 á föstudögum er svokölluð ‘praktíka’ (eða æfinga-stund) í Kramhúsinu. Þá er tilvalið að æfa nýju sporin sem kennd voru á námskeiðum Kramhússins.
Heimilisfang Kramhússins:
Skólavörðustígur 12, gengið inn frá Bergstaðastræti.
———— 00000 ————