Við fögnum Jónsmessunni með sérstakri milongu föstudaginn 26. júní kl. 21–00 í Kramhúsinu.
Gestur kvöldsins er DJ Andy Stein frá Bandaríkjunum, sem hefur DJ-að á Encuentros og Marathon-viðburðum víðs vegar um Bandaríkin og Evrópu frá árinu 2012. Í faraldrinum hóf hann vikulegar Zoom-milongur, Tandas Around the World, og setti á laggirnar Milonga as a Service (MaaS) – frítt, sólarhrings tangóútvarp á netinu sem tengir dansara um allan heim.
Andy er þekktur fyrir að skapa heillandi tónlistarferðalag þar sem gullaldarklassík tangósins mætir vel völdum óvæntum perlum. Með næmu flæði og sterkri uppbyggingu blandar hann saman rómantík, dramatík, leikgleði og krafti – og heldur dansgólfinu lifandi og spennandi allt kvöldið.
Roxana og Bergjót koma til með að vera gestgjafar og halda utan um viðburðinn.
Við hlökkum til að dansa með ykkur á björtu sumarkvöldi um Jónsmessuna ✨
Tangókveðjur,
Tangófélagið
We are celebrating Midsummer with a special milonga on Friday, June 26th at 9:00 PM at Kramhúsin.
Tonight’s guest is DJ Andy Stein from the United States, who has been DJing at Encuentros and Marathon events across the United States and Europe since 2012. During the pandemic, he started weekly Zoom milongas, Tandas Around the World, and launched Milonga as a Service (MaaS) – a free, 24/7 online tango radio station that connects dancers all over the world.
Andy is known for creating a captivating musical journey where golden age tango classics meet carefully selected unexpected gems. With a sensitive flow and strong structure, he blends romance, drama, playfulness and power – and keeps the dance floor alive and exciting all night long.
Roxana and Bergjót will be hosting and managing the event.
We look forward to dancing with you on a bright summer evening during Midsummer ✨