Tangó í Safnahúsinu á Menningarnótt

  1. ágúst 2026 20–21.30
    Safnahúsið
    Komdu og upplifðu töfra argentínsks tangós á Menningarnótt!
    Tangófélagið býður til notalegrar milongu þar sem allir eru velkomnir – hvort sem þú hefur aldrei stigið tangóspor, hefur dansað árum saman eða vilt bara njóta yndislegrar tónlistar.

Kvöldið hefst með stuttri leiðsögn fyrir byrjendur í umsjón Melinu Garcia þar sem farið verður yfir helstu grunnspor og hvernig tangó er dansaður. Að því loknu verður opið dansgólf þar sem okkar frábæri DJ Sóley Óskarsdóttir þeytir skífum. Þar reyndari dansarar geta notið tónlistarinnar og nýir þátttakendur fengið tækifæri til að prófa sig áfram.

Þetta er frábært tækifæri til að kynnast heillandi danshefð í fallegu umhverfi Safnahússins.
Heimilisfang: Hverfisgata 15, 101 Reykjavík