Tangófélagið býður til einstaks tangókvölds í Gamla Bíói sunnudaginn 13. september kl. 19.30 þar sem lifandi tónlist, tónleikar og milonga renna saman í eina heild. Gestir sitja við hringborð og njóta tónleikanna, en fyrir framan sviðið verður dansgólf þar sem hægt verður að dansa milongu allt kvöldið.
Fyrri hluti kvöldsins er helgaður Bergljot Tango Project, nýju og metnaðarfullu tónlistarverkefni Bergljótar Arnalds þar sem saman koma nokkrir af fremstu tónlistarmönnum Íslands. Sveitin sækir innblástur í argentínska tangóhefð en fléttar hana saman við íslensk áhrif, nýjar útsetningar og frumsamið efni. Útkoman er persónuleg og lifandi túlkun á tónlist þar sem tilfinning, samspil og sterk frásögn fá að njóta sín.
Bandonegro
Michał Główka – bandoneon, Jakub Czechowicz – fiðla, Marek Dolecki – píanó, Marcin Antkowiak – kontrabassi
Þetta verður kvöld þar sem íslensk sköpun og alþjóðleg tangóhefð mætast á sama sviði. Tveir ólíkir en samhljóma tónlistarheimar, tónleikar og milonga renna saman í einstaka upplifun þar sem áhorfendur og dansarar verða hluti af lifandi tangóstemningu í hjarta Gamla Bíós.
Bergljót Tango Project
Ásgeir Ásgeirsson – gítar, Bergljót Arnalds – söngur, Gunnar Hrafnsson – bassi, Karl Olgeirsson – píanó, Kjartan Valdemarsson – harmonikka, Hjörleifur Valsson – fiðla
Á milli tónleikasetta sér DJ um að halda dansgólfinu lifandi með klassískum tangó, vals og milongum.
Sérstakur gestur kvöldsins er Bandonegro frá Póllandi en hljómsveitin kemur nú fram á Íslandi í fyrsta sinn. Sveitin hefur skapað sér sterka stöðu á alþjóðlegum tangóvettvangi og er ein fremsta tangóhljómsveit Evrópu. Bandonegro er þekkt fyrir kraftmikinn flutning, einstakan hljóðfæraleik og ferska nálgun á argentínskan tangó sem höfðar jafnt til dansara sem tónleikagesta.
Miða má panta hér: https://tix.is/event/22130/bandonegro-bergljot-tango-project-tonleikar-og-milonga
ENGLISH
Tangófélagið invites you to a unique tango evening in Gamla Bíói on Sunday, September 13th at 7:30 PM, where live music, concerts and milonga merge into one. Guests will sit at a round table and enjoy the concert, while in front of the stage there will be a dance floor where you can dance milonga all evening.
The first part of the evening is dedicated to Bergljot Tango Project, Bergljót Arnald’s new and ambitious musical project that brings together some of Iceland’s leading musicians. The group draws inspiration from the Argentine tango tradition but combines it with Icelandic influences, new arrangements and original material. The result is a personal and lively interpretation of music where emotion, interaction and a strong narrative are enjoyed.
Bandonegro
Michał Główka – bandoneon, Jakub Czechowicz – violin, Marek Dolecki – piano, Marcin Antkowiak – double bass
This will be an evening where Icelandic creativity and international tango tradition meet on the same stage. Two different but harmonious musical worlds, concerts and milonga, merge into a unique experience where spectators and dancers become part of a lively tango atmosphere in the heart of Gamla Bíós.
Bergljót Tango Project
Ásgeir Ásgeirsson – guitar, Bergljót Arnalds – vocals, Gunnar Hrafnsson – bass, Karl Olgeirsson – piano, Kjartan Valdemarsson – accordion, Hjörleifur Valsson – violin
Between sets, a DJ keeps the dance floor alive with classic tango, waltz and milongas.
A special guest for the evening is Bandonegro from Poland, who are now performing in Iceland for the first time. The group has established a strong position on the international tango scene and is one of the leading tango bands in Europe. Bandonegro is known for their dynamic performances, unique instrumentation and fresh approach to Argentine tango that appeals to dancers and concertgoers alike.
Tickets can be ordered here: https://tix.is/event/22130/bandonegro-bergljot-tango-project-tonleikar-og-milonga