Næsta practilonga á mánudaginn kl. 18–20 verður ekki í Iðnó eins og venjulega, heldur á Bókasafninu í Keflavík!
Practilongan er haldin í samstarfi við Samfélag fyrir alla og Bandonegro, með það að markmiði að kynna tangó fyrir fólki utan höfuðborgarsvæðisins og skapa ný tækifæri til að dansa, kynnast og deila tangógleðinni.
Í upphafi kvölds munu Melina Garcia og Sóley Ómars sjá um stutta kynningu á tangó fyrir gesti. Að henni lokinni tekur við praktíka þar sem hægt verður að dansa við bæði DJ og lifandi tónlist, en Bandonegro mun leika fyrir okkur nokkur lög.
Þetta er því frábært tækifæri til að sameinast um tangóinn, taka þátt í að kynna hann fyrir nýjum hópi fólks og njóta um leið alvöru lifandi milongu. 💃🕺
Við hvetjum sem flesta til að mæta!
Og þar sem ferðinni er heitið út fyrir bæinn væri frábært ef fólk gæti sameinast um bíla og hjálpast að við að koma öllum á staðinn. Endilega látið vita ef þið eruð með laust sæti eða vantar far.
Sjáumst í Keflavík á mánudaginn! ❤️ Viðburðurinn er ókeypis.