Allar færslur eftir Snorri Sigfús Birgisson

11. okt. – 19:30: Aðalfundur (opinn félögum). Praktíkan fellur niður / Practica is cancelled

Praktíkan fellur niður 11. október vegna aðalfundar Tangófélagsins sem einungis er opinn meðlimum félagsins.

The Practica is cancelled on October 11th due to the Tango Club’s annual general meeting (members only).

Frá stjórn Tangófélagsins:

Aðalfundarboð

Heil og sæl,

Aðalfundur Tangófélagsins verður haldinn næstkomandi föstudagskvöld, þann 11. október.

Staður: Kramhúsið

Tími: 19.30 –20.30.

Við dönsum svo Föstudagsmilongu í beinu framhaldi af fundi.

 

Dagskrá

  1. Fundarstjóri ákveðinn.

  2. Skýrsla stjórnar.

  3. Ársreikningar félagsins fyrir síðasta starfsár lagðir fram.

  4. Breytingar á starfsreglum félagsins.

    1. Lagðar hafa verið fram tvær lagabreytingatillögur, sjá hér fyrir neðan.

  5. Kosning stjórnar og skoðunarmanns.

  6. Ákvörðun árgjalds

  7. Starfs- og fjárhagsáætlun.

    1. Fastar milongur.

    2. Stærri viðburðir.

    3. Helstu kostnaðarliðir.

  8. Önnur mál.

Við viljum hvetja félagsmenn sérstaklega til að mæta og óskum eftir fólki tilbúið að gefa kost á sér í stjórnina næsta starfsárið.  Það liggur fyrir að tveir í núverandi stjórn munu víkja, og því 3 sæti laus.

Sjáumst hress, 

Stjórn 2023–2024

… 

Tillögur að breyttum starfsreglum.

 

Tillaga 1:

10. grein hljóðar svona:

Aðalfundur kýs fimm stjórnarmenn úr hópi atkvæðisbærra félagsmanna. Stjórnin skiptir með sér verkum.

Lagt er til að eftirfarandi málsgrein verði bætt við:

Hætti stjórnarmaður störfum milli aðalfunda skal kjósa mann í hans stað á félagsfundi.

 

Verði þessi viðbót samþykkt á aðalfundi mun greinin líta svona út eftir breytinguna:

10. gr.

Aðalfundur kýs fimm stjórnarmenn úr hópi atkvæðisbærra félagsmanna. Stjórnin skiptir með sér verkum.  Hætti stjórnarmaður störfum milli aðalfunda skal kjósa mann í hans stað á félagsfundi.

 

Tillaga 2:

Lagt er til að kjósa þrjá aðalmenn í stjórn og tvo varamenn sem að öllu jöfnu gætu sótt stjórnarfundi.

Greinin eftir breytingu hljóðaði þá svona:

Aðalfundur kýs þrjá stjórnarmenn og tvo til vara  úr hópi atkvæðisbærra félagsmanna. Stjórnin skiptir með sér verkum. Varamenn hafa rétt á að sækja stjórnarfundi.

29. September: Sunnudagsmilonga og skiptimarkaður í Iðnó

Please scroll down for English.

29. sept. 2024
í Iðnó, Vonarstræti 3
kl. 16.30–18.30.

Sunnudagsmilonga með alternatífu ívafi.

Skiptimarkaður fyrir tangóföt og tangóskó. 
Mætið endilega með það sem þið eruð hætt að nota
og gefið, skiptið eða seljið.



Aðgangseyrir:
Félagsmenn: 1.000
Utanfélagsmenn: 1.500

DJ Stefán Snorri

————————————–

September 29th
at 4.30pm-6.30pm
Venue: Iðnó.
Address: Vonarstræti 3.

Sunday Milonga featuring a classic and alternative mix.

Exchange market for used tango clothing and shoes. Feel free to bring items you no longer use for exchange, sale, or to give away.

Admission:
Members: 1000 ISK,
Non-members: 1500 ISK

DJ Stefán Snorri

27. september: First Step Milonga og Prufutími / Trial Class

Please scroll down for English

27. september:
First Step Milonga og prufutími
í Kramhúsinu
(vinstra megin við Bergstaðastræti 7)

„First Step Milonga“ er haldin einu sinni í mánuði og er kvöldið tileinkað nýjum dönsurum.

Markmið kvöldsins er að kynnast tangó-balli, kynnast hvert öðru og eiga saman ánægjulega kvöldstund.  Tangó-ball er kallað „Milonga“.

Dagskrá
Kl. 19.50: Húsið opnar.
Kl. 20-21: Prufutími fyrir nýja dansara.
Kl. 21: Milongan hefst. Opinn bar sem Kramber sér um.
Kl. 21.30: Stutt uppákoma – ísbrjótur.
Kl. 23 eða síðar: Milongunni lýkur – La cumparsita.
 
Allir velkomnir, bæði nýir og vanir dansarar.
Ekki er nauðsynlegt að koma með dansfélaga.

 

Umsjón: Bryndís og Hany.
DJ Heiðar.
Gestgjafi: Svanhildur Ó.
 

Vanir dansarar, – vinsamlegast hafið í huga:
  • Að aðlaga sig að getustigi þess sem þú dansar við.  Á við bæði um þá sem leiða og þá sem fylgja.
  • Aldrei “kenna” þeim sem þú dansar við, né gefa umsögn um frammistöðu.
  • Að taka þátt í leikjum og uppákomum eins og aðrir gestir.
Aðgangseyrir (gildir fyrir prufutímann og/eða milonguna):
Félagsmenn í Tangófélaginu: 1.000
Þeir sem ekki eru félagsmenn:  1.500
Félagar í Tangófélaginu sem eru í áskrift greiða ekki aðgangseyri.
 
Skipulagt af Bryndísi & Hany
í samstarfi við Tangófélagið og kaffihúsið Kramber.
_________________________
 

September 27th:
First Step Milonga and Trial Class
in Kramhúsið (next to Bergstaðastræti 7).

First Step Milonga is held once a month and is dedicated to new dancers. The goal of the evening is to get to know social dancing, get to know each other and to have a pleasant evening together.
A tango dance event is called a „milonga“.
 
Program
7.50pm: Opening of the house
8pm-9pm: Trial class for new dancers
9pm: Milonga begins. Open bar by Kramber
9:30pm: „Icebreaker“
11pm or later: The milonga ends – La cumparsita.
 

Everyone is welcome, both new and experienced dancers.
Couples and those without a dance partner are equally welcome. 

Supervision: Bryndís & Hany
DJ Heiðar.
Host: Svanhildur Ó.

 
Experienced dancers please keep the following in mind:
  • Adjust to the level of the person you are dancing with, both those who lead and those who follow.
  • Never „teach“ the person you dance with at a milonga, nor give feedback on a performance.
  • Participate in games & events like other guests.
Admission (valid for the Trial Class and/or for the Milonga):.
Members of the Tango Club: ISK 1.000.
Those who are not members: ISK 1.500.
Members of the Tango Club with a subscription do not pay an entrance fee.

 

To find Kramhúsið:
As you stand on the corner of Skólavörðustígur and Bergstaðastræti look for the car park facilities at  Bergstaðastræti 6.  On the other side of the road, walk up a small alley (the one on the left, decorated with a pink bird), and you will see Kramhúsið.

 
Organized by Bryndís & Hany in collaboration with Tangófélagið and the café Kramber.

Tangó-námskeið byrja 8. sept / Tango Classes start on Spetember 8th

Please scroll down for English.

Námskeið á haust tímabili hefjast 8. sept. 2024.
Byrjendur / Miðstig /Framhald.
Kennarar: Bryndís & Hany
Kennsla í allra hæsta gæðaflokki!

Nánari upplýsingar hér.

————————————

Tango Classes for Beginners / Intermediate / Advanced.
Autumn season starts on September 8th, 2024.

Teachers: Bryndís & Hany.
Top-notch teaching!

More information here.

Praktíkur kl. 20.15 á föstudögum (Practicas on Fridays)

Please scroll down for English.

Tangófélagið býður öllum sem vilja kynna sér tangó að koma á föstudögum kl. 20:15 í Kramhúsið í 45 mínútna opinn tíma sem nefndur er praktíka.  Ekki þarf að skrá sig fyrirfram. Allir eru velkomnir, pör og einstaklingar án dansfélaga, og andrúmsoftið er frjálslegt og óformlegt. Þeir sem hafa dansað áður í lengri eða skemmri tíma geta notað þennan tíma til að æfa sig og þeir sem aldrei hafa dansað tangó taka fyrstu skrefin og njóta leiðsagnar sem sniðin er að þörfum hvers og eins. Þetta er tilvalin leið til að nálgast töfraheim tangósins.

Praktíkunni lýkur kl. 21 og þá hefst tangó-ball („milonga“).
Föstudags milonga Tangófélagsins heitir Milonga el Cramo.

Aðgangur að praktíkunni er ókeypis og þeir sem mæta á hana geta tekið þátt í milongunni án endurgjalds til kl. 21:30, en þeir sem vilja vera lengur greiða aðgangseyri (kr. 1.500 / félagsmenn greiða 1.000,-) nema þeir séu í áskrift (sjá nánar hér).

—————————————————————————–

The Tango Club offers a 45 minutes Practica at Kramhúsið (Next to  Bergstaðastræti 7) on Fridays at 20:15.
It’s for those who wish to practice but also for those who have never danced tango before and would like to learn the basics and enter the magical world of tango.  Everyone is welcome, both couples and those without a dance partner.  It’s an informal and friendly time.

Admission to the practica is free and the participants are welcome to stay (without paying admission fee) for the first 30 minutes of the ensuing Milonga el Cramo which starts at 21:00 and ends at 23:00 (or later).  Those who wish to stay longer than 21:30 at the milonga pay an entrance fee (ISK 1.500 /Members pay ISK 1.000,-) unless they subscribe to milongas (please click here for information about subscription fees).

To find Kramhúsið:  As you stand on the corner of Skólavörðustígur and Bergstaðastræti look for the car park facilities at  Bergstaðastræti 6.  On the other side of the road (next to Bergstaðastræti 7) walk up a small alley (the one on the left, decorated with a pink bird)  and you will see Kramhúsið.

Menningarnótt 24. ágúst – Úti-milongur – Bríetarbrekku og á Kramberspallinum.

Please scroll down for English.

Milonga á Menningarnótt 2024.

Tangófélagið býður upp á úti-milongu á Menningarnótt í Reykjavík.

Dansað verður kl. 15:00 – 16:30, laugardaginn 24. ágúst.

Staðsetning: Bríetarbrekka.
(á horni Amtmannsstígs og Þingholtsstrætis).

Aðgangur ókeypis.  Allir velkomnir. 

DJ Helgi.

Að lokinni milongunni er upplagt að halda áfram að dansa á Kramberspallinum (kl. 16:30).  Nánari upplýsingar hér.

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ 

Milonga on Culture Night, 2024.

Tango Club Reykjavík invites you to an outdoor milonga on Culture Night.

We dance from 3pm to 4:30pm on Saturday August 24th.

Venue: Bríetarbrekka, Amtmannsstígur 11
(on the corner of Amtmannsstígur and  Þingholtsstræti).

Free admission.  Everyone is welcome.

DJ Helgi.

After the milonga there is more tango
at Kramber (4:30pm).

More information here.