Greinasafn fyrir merki: uppsláttur

Þrjátíu ár í tangó – hátíð dans, tónlistar og samveru

Þrjátíu ár í tangó – hátíð dans, tónlistar og samveru

Í ár eru liðin 30 ár frá því að Bryndís og Hany komu fram á Listahátíð í Reykjavík með Le Grand Tango, tangóseptett undir stjórn Olivier Manoury bandeoneonleikara og Eddu Erlendsdóttur píanóleikara. Þessi viðburður hlaut afar góðar viðtökur og varð upphafið af farsælum ferli þeirra sem tangódansarar og kennarar.

Af þessu tilefni standa þau fyrir Tangohátíð í Kramhúsinu og Iðnó þar sem í boði eru tvö þriggja daga námskeið fyrir nýja og reynda dansara með toppklassa kennurum, milonga á föstudegi í samstarfi við Tangófélagið og hátíðarkvöld á laugardegi í Iðnó með sameiginlegum kvöldverði, lifandi tónlist, tangósýningum og tango-DJ sem spilar fram á nótt.

Sérstakir gestir hátíðarinna eru þau Sabrina Veliz og Alejandro Lencina frá Buenos Aires, sem eru alþjóðlega viðurkennd sem dansarar og kennarar í fremsta flokki. Sabrina og Alejandro munu kenna á báðum námskeiðum hátíðarinnar og sýna á hátíðarkvöldinu ásamt Bryndísi og Hany.

Sjáið Sabrina og Alejandro dansa hér:

Hægt er að skrá sig á annað eða bæði seminör, stakar milongur, eða kaupa stóra pakkann inniheldur bæði seminör og báðar milongur og gefur mestan afslátt. Hátíðarkvöldverðinn þarf að bóka fyrirfram.

Okkur þætti afar vænt um að sjá sem flest ykkar þessa helgi og njóta dansins og tónlistarinnar sem hefur mótað líf þeirra og margra annarra dansara síðustu áratugi. Það er einstakt tækifæri að fá hingað þau Sabrina Veliz og Alejandro Lencina, toppklassa kennara og dansara sem enginn ætti að missa af.

Skráið ykkur núna til að tryggja ykkur pláss, námskeiðin eru að seljast upp.

Kynnið ykkur allt um hátíðina og finnið skráninguna með því að smella á þennan link: https://tangostudio.is/30-ara-years-anniversary/

Thirty Years in Tango – A Celebration of Dance, Music & Togetherness

This year marks 30 years since Bryndís and Hany performed at the Reykjavík Arts Festival with Le Grand Tango, a tango septet led by bandoneon player Olivier Manoury and pianist Edda Erlendsdóttir. The performance was very well received and marked the beginning of their successful career as tango dancers and teachers.

To celebrate this milestone, they are hosting a tango festival at Kramhúsið and Iðnó, featuring two three-day seminars for new and experienced dancers, taught by top-level instructors. There will be a milonga on Friday evening in collaboration with Tangófélagið, followed by a special festival night on Saturday at Iðnó, including a shared dinner, live music, tango performances and a Tango DJ playing late into the night.

Special guests are Sabrina Veliz and Alejandro Lencina from Buenos Aires, internationally acclaimed as dancers and teachers of the highest calibre. Sabrina and Alejandro will teach both seminars and perform at the festival night alongside Bryndís and Hany.

Watch Sabrina and Alejandro dance here:

You can sign up for either one or both seminars, buy milonga tickets, or choose the full festival package, which offers the greatest discount and includes both seminars and both milongas. The festival dinner must be booked separately and in advance.

We would be delighted to see as many of you as possible this weekend and share with you the dance and music that have shaped their lives and many other tango dancers over the past decades.

It is a unique opportunity to welcome Sabrina Veliz and Alejandro Lencina, world-class teachers and dancers. This is an opportunity no tango enthusiast should miss.

Find out more about the festival and register by clicking this link: https://tangostudio.is/en/30th-anniversary-festival/

Sign up now to secure your place – the seminars are expected to fill up quickly!

Bandonegro í Gamla bíói 13. september

Tangófélagið býður til einstaks tangókvölds í Gamla Bíói sunnudaginn 13. september þar sem lifandi tónlist, tónleikar og milonga renna saman í eina heild. Gestir sitja við hringborð og njóta tónleikanna, en fyrir framan sviðið verður dansgólf þar sem hægt verður að dansa milongu allt kvöldið.
Fyrri hluti kvöldsins er helgaður Bergljot Tango Project, nýju og metnaðarfullu tónlistarverkefni Bergljótar Arnalds þar sem saman koma nokkrir af fremstu tónlistarmönnum Íslands. Sveitin sækir innblástur í argentínska tangóhefð en fléttar hana saman við íslensk áhrif, nýjar útsetningar og frumsamið efni. Útkoman er persónuleg og lifandi túlkun á tónlist þar sem tilfinning, samspil og sterk frásögn fá að njóta sín.
Bergljot Tango Project
Ásgeir Ásgeirsson – gítar, Bergljót Arnalds – söngur, Gunnar Hrafnsson – bassi, Karl Olgeirsson – píanó, Kjartan Valdemarsson – harmonikka, Pétur Björnsson – fiðla
Á milli tónleikasetta sér DJ um að halda dansgólfinu lifandi með klassískum tangó, vals og milongum.
Sérstakur gestur kvöldsins er Bandonegro frá Póllandi en hljómsveitin kemur nú fram á Íslandi í fyrsta sinn. Sveitin hefur skapað sér sterka stöðu á alþjóðlegum tangóvettvangi og er ein fremsta tangóhljómsveit Evrópu. Bandonegro er þekkt fyrir kraftmikinn flutning, einstakan hljóðfæraleik og ferska nálgun á argentínskan tangó sem höfðar jafnt til dansara sem tónleikagesta.
Bandonegro
Michał Główka – bandoneon, Jakub Czechowicz – fiðla, Marek Dolecki – píanó, Marcin Antkowiak – kontrabassi
Þetta verður kvöld þar sem íslensk sköpun og alþjóðleg tangóhefð mætast á sama sviði. Tveir ólíkir en samhljóma tónlistarheimar, tónleikar og milonga renna saman í einstaka upplifun þar sem áhorfendur og dansarar verða hluti af lifandi tangóstemningu í hjarta Gamla Bíós.

Yo hablo tango! Spænskunám

Á mánudaginn kl. 17.30 , fyrir practilonguna, byrjum við í Tangófélaginu með skemmtilega nýjun „Yo hablo tango“. Þar koma þær Maria Sastre og Bergljót Arnalds til með að leiða stutt spænskunámskeið með vinsæla tangótexta sem grunn. Viðburðinn á sér stað í Iðnó þar sem fólk getur keypt sér súpu til snæðings og veigar á Happy hour á meðan tangótextar verða krufnir til mergðar.
||
On Monday at 5:30 PM, before the practilonga, we are starting a fun new event at the Tango Club called “Yo hablo tango.” Maria Sastre and Bergljót Arnalds will lead a short Spanish course based on popular tango lyrics. The event will take place at Iðnó, where people can buy soup for a snack and drinks during Happy Hour while the tango lyrics are analyzed in depth.