Greinasafn fyrir merki: uppsláttur

Aðalfundur Tangófélagsins í Kramhúsinu 30. okt. kl. 20–21

Kæru félagar,

Við boðum hér með til árlegs aðalfundar Tangófélagsins þann 30. október kl. 20–21 í Kramhúsinu. Allir sem eru áskriftarfélagar og félagar eru hvattir til að mæta og taka þátt.

Dagskrá:
a) Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári
b) Reikningsskil
d) Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga
e) Ákvörðun árgjalds
f) Starfs- og fjárhagsáætlun
g) Önnur mál.

Að loknum aðalfundi hefst Halloween-milongan!

||

Dear members,

We hereby invite you to the annual general meeting of the Tango Society on October 30th at 8–9 p.m. in Kramhúsin. Every one who is either a subscription member or regular member is elegible to participate.

Agenda:
a) Report on the activities of the society during the past year
b) Financial statements
d) Election of the board and auditors
e) Determination of the annual fee
f) Work and budget
g) Other matters.

After the general meeting, the Halloween milonga will begin!

Hrikalegur hrekkjavökutangó!

Föstudaginn 30. október ætlum við að halda ógnvænlega skemmtilega Halloween-milonga! Gestir eru hvattir til að mæta í hrollvekjandi búningum og gefa dramatíkinni lausan tauminn á dansgólfinu. TDJ Hlynur Helgason velur tónlistina og sér til þess að tangóástríðan haldi kuldahrollinum í skefjum.

Bergljót, Maria og Roxana taka á móti gestum með ísköldum kveðjum og ógnvekjandi þokka, eins og þeim einum er lagið.

Blóðkenndur vökvi verður til sölu á staðnum, á kostnaðarverði.

Komdu í þínu hryllilegasta pússi — og dansaðu af lífs og sálar kröftum!

||

On Friday, October 30th, we are hosting a spooky Halloween milonga! Guests are encouraged to come dressed in spooky costumes and let the drama run wild on the dance floor. TDJ Hlynur Helgason will select the music and ensure that the tango passion keeps the chills at bay.

Bergljót, Maria and Roxana will welcome guests with icy greetings and spooky charm, as only they know how.

Bloody liquid will be for sale on site, at cost price.

Come in your scariest outfit — and dance with all your heart and soul!

Nýtt áskriftartímabil — nóvember, desember og janúar (new subscription period)

Please scroll down for English.

Kæru félagar!
Nú er að hefjast nýtt áskriftartímabil, en það hefst 1. nóvember og stendur til 31. janúar 2027.

Núverandi áskrifendur fá seðil í hraðbanka. Þeim sem greiða með millifærslu er bent á að gera það núna.

Full áskrift er kr. 12.000 og áskrift að El Cramo eða ¡practilongu! einvörðungu er kr. 8.000.

Við skorum einnig á aðra tangóáhugamenn að ganga í félagið núna eða hefja áskrift. Aðild að félaginu veitir afslátt af bæði stökum milongum og viðburðum á vegum félagsins.

Boðið er upp á fjóra möguleika,

(a) Félagsaðild án áskriftar (kr. 5.000 á ári),
(b) Félagsaðild og áskrift að föstudags milongum (“El Cramo”):
kr. 8.000 ársfjórðungslega,
(c) Félagsaðild og áskrift að mánudags practilongum í Iðnó:
kr. 8.000 ársfjórðungslega, og
(d) Félagsaðild og full áskrift (Iðnó + El Cramo):
kr. 12.000 ársfjórðungslega.

Nýir áskrifendur eru vinsamlegast beðnir um að smella á linkinn hér fyrir neðan  og fylla út eins og við á (með upplýsingum um nafn, netfang, kennitölu og valkost).

————————————————

Dear members!
A new subscription period begins on 1 November and runs until 31 January 2027.

Current subscribers should have already received a payment slip in their online bank. Those who pay by bank transfer are advised to do so now.

Full subscription costs ISK 12,000, and a subscription to either El Cramo or ¡practilonga! The cost is ISK 8,000 for the three-month period.

Those already subscribing to milongas will automatically receive a bill in their HEIMABANKI.

Those without a subscription can now start a new subscription. Four options are on offer:

(a) Membership without subscription: ISK 5.000 per year,
(b) Membership and subscription to Friday milongas (“El Cramo”):
ISK 8.000 quarterly,
(c) Membership and subscription to Monday practilongas (at Iðnó):
ISK 8.000 quarterly, and
(d) Membership and full subscription to Tuesday and Friday milongas: (ISK 12,000 quarterly).

Please fill out the following form, indicating your name, e-mail address, and social security number (kennitala), and please indicate the most suitable arrangement for you.

NOTE: Bill will appear in your HEIMABANKI!