Greinasafn fyrir merki: uppsláttur

Þorrablótsmilonga laugardaginn 7. feb. á Hólmsheiði

Sveitamilonga í Þorranum – tangódanskvöld í fallegu umhverfi

Tangófélagið býður til Sveitamilongulaugadagskvölið 7. febrúar. Dansað verður í Sóleyjarhúsi (áður Svövuhúsi), í nágrenni Rauðhóla og Heiðmerkur, þar sem sveitastemning og tangótónar mætast.

🕗 Tími: kl. 20:00–23:00
🎶 TDJ: Hlynur Helgason
🌿 Gestgjafi: Bergljót Arnalds

🥂 Við bjóðum upp á brennivínsstaup og snakk með þorrablótsívafi, til að ylja bæði líkama og sál á milli tanda.

📍 Aðkoma:
Keyrt er austur út úr bænum og rétt við bæjarmörkin er beygt til hægri þar sem stendur merki „Hjólkoppar til sölu“. Afleggjarinn er stuttur malavegur. Frá veginum sést hús merkt Sóleyjarhús og skreytt hvítri jólaseríu. Aðkoman er hrá og hestar hinum megin við næstu girðingu eins og vera ber í sveitinni. Salurinn er aftur á móti hlýr og notalegur með eldhúsi og hugleiðsluþema.
Sjá kort neðar.
Endilega deilið bílum og bjóðið far – ekki eru mörg stæði á lóðinni, en nóg til að taka á móti okkur.

💃 Verð:

  • 2.300 kr. fyrir félagsmenn
  • 2.800 kr. fyrir aðra

🎟️ Miðakaup:
Hægt er að kaupa miða fyrirfram með millifærslu á Tangófélagið eða borga á staðnum.
Reikningur félagsins er: 0303-26-002215
Kennitala: 480500-3180
Sendið skilaboð um miðakaup á: tangofelagid@gmail.com 

Komið og njótið tangósins í hlýlegu og rólegu umhverfi – við hlökkum til að sjá ykkur á viðardansgólfinu!

Countryside Milonga in Þorri – A Tango Night in a Beautiful Setting

The Tango Club invites you to a Countryside Milonga on Saturday evening, February 8th. We will dance in Sóleyjarhús (formerly Svövuhús), near Rauðhólar and Heiðmörk, where a rustic atmosphere and tango tunes meet.

🕰️ Time: 20:00–23:00
🎶 TDJ: Hlynur Helgason
🌿 Host: Bergljót Arnalds

🥂 We will offer a shot of brennivín and snacks with a Þorrablót twist to warm both body and soul between tandas.

📍 Getting there:
Drive east out of the city, and just at the city limits, turn right where you see a sign that says “Hjólkoppar til sölu” (Hubcaps for sale). The turn-off is a short gravel road. From the road, you can see a house marked Sóleyjarhús, decorated with white Christmas lights. The approach is rustic, with horses on the other side of the nearest fence, just as it should be in the countryside. The hall, on the other hand, is warm and cozy with a kitchen and a meditation theme.
See map below.
Please carpool and offer rides – there aren’t many parking spaces on the property, but enough to accommodate us.

💃 Price:

  • 2,300 ISK for members
  • 2,800 ISK for others

🎟️ Ticket purchase:
You can buy tickets in advance via bank transfer to the Tango Club or pay on-site.
The club’s account is: 0303-26-002215
Kennitala (ID no.): 480500-3180
Send a message about your ticket purchase to: tangofelagid@gmail.com

Come and enjoy the tango in a warm and peaceful environment – we look forward to seeing you on the wooden dance floor!

Nýtt áskriftartímabil — febrúar, mars og apríl (new subscription period)

Please scroll down for English.

Kæru félagar!
Nú er að hefjast nýtt áskriftartímabil, en það hefst 1. febrúar og stendur til 30. apríl.

Núverandi áskrifendur eiga að vera búnir að fá seðil í hraðbanka. Þeim sem greiða með millifærslu er bent á að gera það núna.

Athugið að við höfum hækkað gjaldið til að mæta verðhækkunum á húsnæði, en gjaldið hefur ekki hækkað undanfarin tvö ár. Eftir hækkun fer full áskrift upp í kr. 12.000 í stað 11.000 fyrr. Áskrift að El Cramo eða ¡practilongu! einvörðungu hækkar í kr. 8.000 í stað 7.500.

Við skorum einnig á aðra tangóáhugamenn að ganga í félagið núna eða hefja áskrift. Aðild að félaginu veitir afslátt af bæði stökum milongum og viðburðum á vegum félagsins.

Boðið er upp á fjóra möguleika,

(a) Félagsaðild án áskriftar (kr. 5.000 á ári),
(b) Félagsaðild og áskrift að föstudags milongum (“El Cramo”):
kr. 8.000 ársfjórðungslega,
(c) Félagsaðild og áskrift að mánudags practilongum í Iðnó:
kr. 8.000 ársfjórðungslega, og
(d) Félagsaðild og full áskrift (Iðnó + El Cramo):
kr. 12.000 ársfjórðungslega.

Nýir áskrifendur eru vinsamlegast beðnir um að smella á linkinn hér fyrir neðan  og fylla út eins og við á (með upplýsingum um nafn, netfang, kennitölu og valkost).

————————————————

Dear members!
A new subscription period begins on February 1st and runs until April 30th.

Current subscribers should have already received a payment slip in their online bank. Those who pay by bank transfer are advised to do so now.

Please note that we have increased the fee to cover the rise in housing costs, as the fee has not been increased for the past two years. After the increase, a full subscription will cost ISK 12,000 instead of ISK 11,000. A subscription to either El Cramo or ¡practilonga! only will increase to ISK 8,000 instead of ISK 7,500.

Those already subscribing to milongas will automatically receive a bill in their HEIMABANKI.

Those without a subscription can now start one for the new period. Four options are on offer:

(a) Membership without subscription: ISK 5.000 per year,
(b) Membership and subscription to Friday milongas (“El Cramo”):
ISK 8.000 quarterly,
(c) Membership and subscription to Monday practilongas (at Iðnó):
ISK 8.000 quarterly, and
(d) Membership and full subscription to Tuesday and Friday milongas: (ISK 12,000 quarterly).

Please fill out the following form, indicating your name, e-mail address, and social security number (kennitala), and please indicate the most suitable arrangement for you.

NOTE: Bill will appear in your HEIMABANKI!

Yo hablo tango! Spænskunám

Á mánudaginn kl. 17.30 , fyrir practilonguna, byrjum við í Tangófélaginu með skemmtilega nýjun „Yo hablo tango“. Þar koma þær Maria Sastre og Bergljót Arnalds til með að leiða stutt spænskunámskeið með vinsæla tangótexta sem grunn. Viðburðinn á sér stað í Iðnó þar sem fólk getur keypt sér súpu til snæðings og veigar á Happy hour á meðan tangótextar verða krufnir til mergðar.
||
On Monday at 5:30 PM, before the practilonga, we are starting a fun new event at the Tango Club called “Yo hablo tango.” Maria Sastre and Bergljót Arnalds will lead a short Spanish course based on popular tango lyrics. The event will take place at Iðnó, where people can buy soup for a snack and drinks during Happy Hour while the tango lyrics are analyzed in depth.