Kramhúsið auglýsir 6 vikna framhaldsnámskeið sem hefst
9. janúar 2017. Námskeiðið er einkum hugsað þannig að það henti þeim sem hafa lokið byrjendanámskeiði. Kennt verður einu sinni í viku, á fimmtudagskvöldum kl. 21.00–22.15. Námskeiðið kostar 14.800 kr. á mann. Nauðsynlegt er að hafa dans-partner á námskeiðinu. Kennarar eru Tryggvi Hjörvar og Þórunn Sævarsdóttir. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Kramhússins (http://www.kramhusid.is/events/tango/) og þar er hægt að skrá sig á námskeiðið. Einstaklingar sem vilja taka þátt í námskeiðinu en vantar dansfélaga geta nýtt sér Facebook-hóp sem nefnist Tango club Reykjavík – Partnersearch. Þar er hægt að pósta í grúppuna:
https://www.facebook.com/groups/579335245422129/
Tangófélagið býður þátttakendum á námskeiði Kramhússins ókeypis aðgang að milongum félagsins á meðan á námskeiðinu stendur. Tangó-dansleikur nefnist ‘milonga’ og Tangófélagið stendur fyrir tveimur slíkum milongum í viku hverri, á miðvikudögum kl. 20–22 á Kaffitári (Bankastræti 8) og í Kramhúsinu (Skólavörðustíg 12) á föstudagskvöldum kl. 21–24. Sérstök athygli er vakin á því að milli kl. 21 og 22 á föstudögum er svokölluð ‘praktíka’ (eða æfinga-stund) í Kramhúsinu. Þá er tilvalið að æfa nýju sporin sem kennd voru á námskeiðinu kvöldið áður hjá Tryggva og Þórunni.