Kramhúsið auglýsir 6 vikna tangónámskeið sem hefst
28. apríl n.k. Kennt verður einu sinni í viku. Námskeiðið er fyrir byrjendur og verður kl. 20:00 á föstudögum. Nauðsynlegt er að hafa dans-partner á námskeiðunum. Kennarar eru Tryggvi Hjörvar og Tinna Ágústsdóttir. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Kramhússins (http://www.kramhusid.is/events/tango/) og þar er hægt að skrá sig. Einstaklingar sem vilja taka þátt í námskeiðinu en vantar dansfélaga geta nýtt sér Facebook-hóp sem nefnist Tango club Reykjavík – Partnersearch. Þar er hægt að pósta í grúppuna:
https://www.facebook.com/groups/579335245422129/
Tangófélagið býður þátttakendum á námskeiðum Kramhússins ókeypis aðgang að milongum félagsins á meðan á námskeiðunum stendur. Tangó-dansleikur nefnist ‘milonga’ og Tangófélagið stendur fyrir tveimur slíkum milongum í viku, á miðvikudögum kl. 21–23 á Kaffitári (Bankastræti 8) og í Kramhúsinu (Skólavörðustíg 12) á föstudagskvöldum kl. 21–24. Sérstök athygli er vakin á því að milli kl. 21 og 22 á föstudögum er svokölluð ‘praktíka’ (eða æfinga-stund) í Kramhúsinu. Þar er tilvalið fyrir nemendur að æfa nýju sporin sem kennd verða á námskeiðinu hjá Tinnu og Tryggva.