(English below).
Kynningartími / örnámskeið á vegum Tinnu og Jóa
17. og 18. febrúar.
16. – 18. febrúar n.k. verður tangóhelgi í Kramhúsinu á vegum Tangófélagsins. Sjá nánari upplýsingar um alla viðburði hér:
Í tengslum við þessa sérstöku tangóhelgi verða
Tinna og Jói með kynningartíma / örnámskeið fyrir byrjendur
í Kramhúsinu (neðri sal) laugardaginn 17. febrúar, kl.13:00-14:30 og sunnudaginn 18. febrúar kl. 15:00-16:30 (í efri sal). Verðið er 3000 krónur á mann fyrir 2 x 90 mínútur. Allir eru velkomnir, jafnt pör sem einstaklingar án dansfélaga. Þátttakendum á örnámskeiðinu býðst ókeypis aðgangur að föstudagsmilongu Tangófélagsins
(16. febrúar) í Kramhúsinu kl. 22:15-24:00 og einnig helmings afsláttur (kr. 1.000 í stað 2.000) af miðaverði á hátíðarmilongu Tangófélagsins í Kramhúsinu 17. febrúar kl. 21:00-01:00. Á hátíðarmilongunni verður boðið uppá léttar veitingar og erlendir gestir Tangófélagsins, Alexandra Baldaque og Fernando Jorge, verða með tangó sýningu.
Skráning er með tölvupósti á tangofelagid@gmail.com.
og sendið tölvupóstkvittun á netfangið: tangofelagid@gmail.com með skýringu á því fyrir hvað verið er að greiða. Ekki er tekið við greiðslukortum við innganginn – og millifærsla er þægilegri greiðslumáti en reiðufé fyrir Tangófélagið.
———————
February 17th & 18th.
February 16th – 18th.
Information about all events can be found here.
Along with the events of the weekend
Tinna & Jói will give an introductory class to Argentine tango
in Kramhúsið (Skólavörðustígur 12, off Bergstaðastræti)
on Saturday 17th of February 13:00-14:30 and on Sunday 18th of February at 15:00-16:30. Admission fee is 3.000 ISK per person for 2 x 90 minutes classes. Everyone is welcome, both couples and also individuals without dancing partners. Participants are offered free admission to the traditionial El Cramo milonga at Kramhúsið on Friday, February 16th (22:15-24:00) and also admission for half price (1.000 kr. instead of 2.000 kr.) to the special milonga at Kramhúsið on Saturday February 17th (21.00-01:00) where special guests of the Tango Club, Alexandra Baldaque og Fernando Jorge, will give a tango show. Soft drinks and snacks are included in the admission price.
Please register by e-mail to tangofelagid@gmail.com
(It’s also possible to pay with cash at the entrance door).
– o – o – o – o – o –
One thought on “Örnámskeið fyrir byrjendur 17. & 18. febrúar”
Lokað er á athugasemdir.