Sunnudagspraktíkur Tangóævintýrafélagsins falla niður um óákveðinn tíma. Nánar auglýst síðar.
Sunnudagspraktíka á nýjum stað
Sunnudagspraktíka Tangóævintýrafélagsins hefur verið á Hressó undanfarin misseri en nú hyggst félagið gera tilraun með að vera í Síðumúla 30, þar sem Dansskóli Jóns Péturs og Köru er til húsa.
Fyrsta praktíkan á þessum nýja stað verður sunnudaginn 24. mars
kl. 18–20. Nánari upplýsingar á FaceBook síðu Tangóævintýrafélagsins.
Maraþon 2019 — nokkrar myndir















Le Grand Tango 10. mars í Hörpu
Upplýsingar frá aðstandenum tónleika sem haldnir verða í Hörpu:
Le Grand Tango
Sígildir sunnudagar í Hörpu, Norðurljósum
sunnudaginn 10. mars 2019 kl. 16
Le Grand Tango er tangóseptett sem kemur saman í kringum bandoneonleikarann og tónskáldið Olivier Manoury. Ásamt honum leika nokkrir af fremstu hljóðfæraleikurum landsins, þau Edda Erlendsdóttir píanó, Auður Hafsteinsdóttir 1. fiðla, Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir 2. fiðla, Þórunn Ósk Marínósdóttir víóla, Bryndís Halla Gylfadóttir selló, og Richard Korn kontrabassi.
Hópurinn hefur komið víða fram m.a. á Listhátíð í Reykjavík, Iðnó, Salnum, á Akureyri, Ísafirði og víðar. Þau tóku upp geisladisk með Agli Ólafssyni söngvara fyrir nokkrum árum.
Á efnisskrá eru bæði gömul verk í nýjum útsetningum Oliviers Manoury og nýrri verk. Bandoneonsnillingurinn og tónskáldið Astor Piazzolla var upphafsmaður „tango nuevo“, eða hins nýja tangó, sem olli straumhvörfum í tangótónlist eftir I960 og hafði í för með sér aðskilnað tónlistarinnar og dansins, en opnaði um leið nýjar víddir inn í heim tónlistarinnar. Le Grand Tango setur sér það markmið að flytja fjölbreytta tangótónlist, allt frá danstónlist til kammerverka og einnig að endurvekja þá tegund tónlistar sem er bæði til þess fallin að hlusta á og dansa eftir.
Olivier Manoury hefur allt frá árinu 1979 starfað sem bandoneonleikari með hljómsveitum, söngvurum og tangódönsurum. Hann hefur haldið tónleika og tekið þátt í listahátíðum víðsvegar um heiminn. Auk þess að semja og útsetja tónlist hefur Olivier samið fyrir kvikmyndir, leikhús og ballett. Eftir hann liggja upptökur á fjölmörgum geisladiskum.
Tangó á rætur
að rekja til Buenos Aires í Argentínu stuttu fyrir aldamótin 1900. Eins
og í mörgum borgum Suður-Ameríku á þeim tíma, settist mikill fjöldi
innflytjenda að í Buenos Aires og varð tangóinn hin nýja tónlist þeirra,
eins konar samsuða margbrotins fjölda hinnar ört vaxandi borgar og fór
eins og eldur í sinu um allan heim.
Tangó á sér ótal margar hliðar,
hann er tónlistarlegur fjársjóður, fullur ástríðu, trega og glettni. Í
hinum upprunalega tangó var gítarinn ráðandi hljóðfæri, en bandoneon sem
oft er kallað tangóharmonika og er ættað frá Þýskalandi, varð fljótt
ómissandi hljóðfæri tangótónlistar.
Eins og tónlistin, á dansinn
rætur að rekja til margbrotinnar alþýðu Buenos Aires og varð til undir
áhrifum frá ólíkum áttum. Frá því að tangófárið reið yfir heimsbyggðina á
árunum 1920-1940, hefur hann orðið að sérstakri hefð í dansmenningu og
er stundaður af stórum hópi dansáhugafólks og atvinnudansara við miklar
vinsældir, ekki síst í Evrópu og Bandaríkjunu
NÝTT!! Milonga 12. febrúar verður í iðnó
(English below)
ATHUGIÐ!! Milongan þann 12. febrúar verður í Iðnó kl. 20.30–22.30. – (Ekki í Dósaverksmiðjunni).
ATTENTION!! The Tuesday milonga on February 12th will be in Iðnó, Vonarstræti 1, from 20:30-22:30, as usual.
5. febrúar á Sólon
(English below)
Venjulega eru þriðjudagsmilongurnar í Iðnó, en 5. febrúar verðum við á Sólon, Bankastræti 7a (kl. 20:30-22:30).
Usually the Tuesday milonga is in Iðnó but on February 5th we will be at Sólon Bistro, Bankastræti 7a (20:30-22:30).
Nýtt áskriftartímabil febrúar–maí
Félagsmönnum Tangófélagsins gefst kostur á að vera í áskrift að milongum félagsins. Nýtt 4 mánaða áskriftartímabil hefst 1. feb. og því lýkur 31. maí.
Gjöldin eru sem hér segir:
Áskrift að milongum í Iðnó: Kr. 5.000 (feb. – maí)
Áskrift að milongum í Kramhúsinu („El Cramo“): Kr. 5.000 (feb. – maí)
Áskrift að öllum reglubundnum milongum félagsins
bæði í Iðnó og Kramhúsinu: Kr. 8.000 (feb. – maí).
Aðgangur er ókeypis á allar milongur félagsins fyrir 30 ára og yngri.
Vinsamlegast sendið greiðslu með millifærslu á bankareikning Tangófélagsins og tölvupóstkvittun á netfangið:
tangofelagid@gmail.com með skýringu á því fyrir hvað verið er að greiða. Ekki er tekið við greiðslukortum við innganginn – og millifærsla er þægilegasti greiðslumátinn fyrir Tangófélagið.
Kt: 480500-3180.
Byrjenda – og framhalds-námskeið hefjast 20. janúar. Kennarar: Jói, Eydís og Heiðdís.
Jói (Jóhannes Agnar Kristinsson) auglýsir:
6 vikna byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið
hefjast sunnudaginn 20. janúar. Verð: kr. 12.000 fyrir manninn.
Kennarar: Jói (Jóhannes Agnar), Eydís Rose og Heiðdís Anna.
Sunnudagar eru tangó-dagar!
kl. 16:00-17:00 Framhaldsnámskeið
kl. 17:00-18:00 Byrjendanámskeið
kl. 18:00-19:00 Æfing (practica) með leiðsögn (innifalin í verði)
Kennsla fer fram í Dansskóla Jóns Péturs og Köru í Síðumúla 30.
Allir velkomnir 🙂
Tangófélagið býður öllum þátttakendum ókeypis aðgang að reglubundnum milongum félagsins á meðan á námskeiðunum stendur. Milongur Tangófélagsins eru á þriðjudögum í Iðnó kl. 20:30-22:30 og í Kramhúsinu á föstudögum kl. 21:00-24:00.
Fyrsti klukkutíminn í Kramhúsinu (21-22) er practica.
Daniela Feilcke-Wolff & Raimund Schlie / Nýársmilonga 2019
Frír kynningartími 13. janúar. Kennari: Jói.
Jói (Jóhannes Agnar Kristinsson) auglýsir:
Sunnudagar eru tangódagar!!
Frír kynningartími í argentínskum tangó fyrir áhugasama sunnudaginn 13. janúar.
Kennsla fer fram í Dansskóla Jóns Péturs og Köru í Síðumúla 30 frá kl. 17.00 – 18.00.
Frá kl. 18.00-19.00 verður smáræðis tangóball með leiðsögn.
Allir velkomnir 🙂